Höfundaréttur

Allar ljósmyndir á síðunni eru í minni eigu. Leyfilegt er að nota myndir á síðunni til birtingar á öðrum heimasíðum ef nafn mitt fylgir sem höfundur myndarinnar.

Takk fyrir tillitssemina.

Arnar Ómarsson

meira um höfundarétt >> hér <<

Auglýsing

Könnun

Geymir þú ljósmyndirnar þínar á netinu?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flickr.com

24. febrúar 2007 klukkan 21:23
Ég er kominn með flickr síðu! eins og allir víst... en já tékkið á þessu.. ég hef nefnilega ekki tíma núna til að taka jafn margar myndir og á síðustu önn. Svo ég hendi líklega einn á flickr frekar en inn hér..

Linkur: http://flickr.com/photos/arnar_omarsson
Arnar Ómarsson
2 athugasemdir

Eiki sjötti besti í heiminum!

15. febrúar 2007 klukkan 19:11
Eiríkur Helgason, einn af liðsmönnum Team Divine var settur í 6. sætið yfir bestu jaðarsportsmenn í heiminum. Þó ég sé búinn að segja mörgum þetta og margir eflaust lesið sér til um þetta á Bigjump.is eða í blaðinu vildi ég bara hafa þetta formlegt. Hægt er að lesa meira um þetta á Bigjump.is

Eiki

kveðja.
Arnar Ómarsson
1 athugasemd

Wallride myndir vinsælar í ár!

26. janúar 2007 klukkan 23:04
Eftir mig í Fréttablaðinu í dag

Viðtal og ljósmynd eftir mi í fréttablaðinu í dag. Ekkert nema gott um það að segja, það átti að birta aðra mynd og svo átti ég að fá forsíðuna líka en var víst of seinn.. það kemur bara næst.

Þetta er á bls. 6 í vetrarlífsblaðinu sem fylgir fréttablaðinu í dag

kv. Arnar
Arnar Ómarsson
5 athugasemdir

Forgotten Lores

22. janúar 2007 klukkan 22:32
Jæja þá er prófatíðin næstum búin, ég á eftir eitt próf á fimmtudaginn svo ég leyfði mér að taka nokkrar myndir um helgina.

Hér eru myndir frá tónleikum Forgotten Lores á Græna hattinum. Magnaðir tónleikar, djöfull eru þeir góðir á sviði.

>> Forgotten Lores / Tónleikar
Arnar Ómarsson
1 athugasemd

Prófatíð

07. janúar 2007 klukkan 22:07
Ég hef nú sett myndavélina á hilluna uns prófatörninni í MA líkur 19. jan.

þar til þá -

kveðja.
Arnar Ómarsson
4 athugasemdir

Græni hatturinn

04. janúar 2007 klukkan 01:17
Loksins eru myndir frá tónleikum Laylow á Græna hattinum í desember komnar inn.

>> Græni hatturinn - Laylow / Tónleikar


Kveðja.
Arnar Ómarsson
Engin athugasemd

Djammaðir þú 26. desember?

03. janúar 2007 klukkan 10:28
Ég vil benda á að myndir frá risa klúbbakvöldinu, 26.des á 1929 eru komnar á > bloggsíðu Norequest <.

kveðja.

es. Þann 1.janúar byrjaði ég að taka eina mynd fyrir hvern dag og stefni á að gera það út mánuðinn og skila svo af mér 31 mynd í mánaðalok. Frumleikinn ekki mikilfenglegur en skemmtilegt verkefni þó.
Arnar Ómarsson
1 athugasemd

Brettamyndir

02. janúar 2007 klukkan 10:41
Strákarnir fóru í grafití-portið, ég var með studiolampa til að hjálpa mér við myndatökuna.

>> Wallride / Íþróttir


kveðja.
Arnar Ómarsson
Engin athugasemd

Nýjar snjóbrettamyndir

31. desember 2006 klukkan 01:01
Ég hitti þá félaga í Team Iceland; Gulla, Halldór, Eika, Gidlund og svo var annan svía sem filmaði. Viktor lét ekki sjá sig vegna vinnu. Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir af þessi Jibsessioni. Strákarnir voru búnir að redda sér fjórum sterkum kösturum og rafstöð, búnir að smíða dropin, ná í snjó fyrir að komuna, búa til wirecam apparat sem var að virka alveg rosalega vel og svo voru þeir búnir að styrkja reilið. Þ.e. setja járnkant á það og styrkja fæturna. Það er engin tilviljun að þeir eru að gera það gott, þeir hafa unnið fyrir því.

>> Brekkuskólareil 28. des / Íþróttir



kveðja.
Arnar Ómarsson
Engin athugasemd

Snjóbrettapakki

18. desember 2006 klukkan 05:10
Ágætis brettapakki kominn inn, þetta fer bráðlega svo á Bigjump.is! endilega fylgist með þeirri síðu! fullt af íslenskum snjóbrettafréttum og stöffi.

>> Hlíðarfjall 16. des / Íþróttir
>> Brekkuskólareil / Íþróttir

Ég þurfti að lýsa hlíðarfjallsmyndirnar mikið eftir á svo sumar eru frekar grófar, en þetta skilar sér held ég alveg!

kveðja.

Græni hatturinn coming soon

Arnar Ómarsson
Engin athugasemd